Tímasetning aðgerðar með hliðsjón af greiningu
Í stuttu máli:
Að koma fyrir vefþenjara tefur ekki fyrir meðferð eða bata og breytir ekki heldur tiltakanlega útliti á meðan hann hefur ekki verið fylltur með saltvatni. Þessi aðgerð hefur reynst mörgum konum vel og þeim líður betur – að minnsta kosti hafa þær þá stigið fyrsta skrefið í þá átt að fá nýtt brjóst. Séu einhverjar líkur á því að þú þurfir að fara í geislameðferð, biddu þá skurðlækni þinn að tryggja að ekki verði settur inn vefþenjari með gátt úr málmi. Vefþenjarinn verður allur að vera úr plasti
Sértu ekki viss um á hvaða stigi brjóstakrabbameinið er, gætir þú þurft að lesa þér til á eftirfarandi síðum brjostakrabbamein.is:
Brjóstakrabbamein á fyrstu stigum
-
Í góðu lagi er að búa strax til nýtt brjóst.
-
Tvo sjálfstæða skurðlækna og aðstoðarfólk þarf til gera tvær aðskildar aðgerðir.
-
Tíminn ræðst af því hvenær skurðstofa er laus fyrir aðgerðirnar og hvenær skurðlæknar hafa tíma – það getur þýtt dálitla bið.
Brjóstakrabbamein á millistigi eða dreift krabbamein
(Æxlið er stærra en fimm sentímetrar; krabbamein hefur borist í eitla)
-
Eftir að brjóstið hefur verið tekið þarftu trúlega mjög fljótlega að fara í meðferð með krabbameinslyfjum eða í geislameðferð, nema hvort tveggja sé.
-
Best er að fresta því að búa til nýtt brjóst þar til meðferð er að fullu lokið (hálft til eitt ár).
-
Þegar þar að kemur verða þarfir þínar, heilsufar og hugsanleg viðbótarkíló af völdum lyfjagjafar komin á rétt ról þannig að þú getir tekið ákvörðun um nýtt brjóst sem þú ert ánægð með.
Staðbundið dreift brjóstakrabbamein og bólgukrabbamein í brjósti
(brjóstakrabbamein á stigum IIIA og IIIB)
Af mörgum ástæðum ættirðu ekki að fara strax í aðgerð til að láta búa til nýtt brjóst:
-
Tíminn sem það tekur þig að jafna þig og gróa sára þinna seinkar óhjákvæmilega nauðsynlegri meðferð með krabbameinslyfjum og geislum.
-
Hvers kyns aðgerð í því skyni að búa til nýtt brjóst getur aflagað vefinn umhverfis brjóstholið sem læknar þínir verða að halda áfram að fylgjast mjög náið með vegna möguleika á að krabbamein taki sig upp á ný.
-
Geislameðferð mun tímabundið – stundum til frambúðar – gera vefinn á meðferðarsvæðinu stífan sem aftur gæti breytt vöðvavef og fitu sem notað til að búa til nýtt brjóst og gert það að verkum að brjóstið virðist óeðlilegra en ella.
|
Hliðarmynd af brjóstasvæði og tómum vefjaþenjara sem komið hefur verið fyrir. A Tómur vefþenjari |
ÞB

