Mataræði, hráefni, næring og einfaldar uppskriftir

Í kaflanum Daglegt líf er að finna afar mikinn fróðleik um mataræði og næringu, einkum í tengslum við brjóstakrabbamein og ýmsar aukaverkanir lyfja og meðferða, skrifað af næringarfræðingum og öðrum sérfræðingum.

Í þessum hluta eru kynntar hugmyndir Jane Plant um mataræði og gefnar uppskriftir sem sniðnar eru að þeim. Það sem hér er sagt er fyrst og fremst byggt á bók hennar Your Life in Your Hands - Understanding, Preventing and Overcoming Breast Cancer (Líf þitt í eigin höndum, að skilja, fyrirbyggja og sigrast á brjóstakrabbameini). Jane Plant hefur gefið út fimm bækur, þar á meðal uppskriftabók sem ber heitið The Plant Programme - Recipes for Fighting Breast and Prostate Cancer. Sjötta bókin er á leiðinni.

Jane Plant er vísindakona, prófessor í jarðefnafræði og yfirmaður rannsókna við Bresku jarðfræðistofnunina (British Geological Survey).

Þegar Jane greindist með krabbamein í fimmta sinn fyrir fimmtán árum (meinvarp frá brjóstakrabbameini) og læknar sögðu henni að hún ætti einungis tvo mánuði eftir ólifaða því allar þekktar meðferðir hefðu þegar verið reyndar, höfðu hún og maður hennar, sem einnig er vísindamaður, þegar hafið leit að einhverjum úrræðum. Nú hertu þau róðurinn. Nánast fyrir tilviljun beindust augu þeirra að Kína og þeirri staðreynd að á þeim árum fékk einungis ein af hverjum hundrað þúsund konum í Kína brjóstakrabbamein. Á Vesturlöndum var þessi tala ein af hverjum tíu.

Hvað var það við lifnaðarhætti kvenna í Kína sem kom í veg fyrir þessa tegund krabbameins?

Erfðaþættir voru nokkurn veginn útilokaðir því kínverskum konum, búsettum á Vesturlöndum, virtist jafn hætt við sjúkdómnum og vestrænum konum. Ýmislegt úr vinnuferðum þeirra hjóna til Kína rifjaðist upp fyrir Jane og hún fór að velta fyrir sér hvort lausnin gæti falist í að forðast allar mjólkurafurðir. Hún ákvað að láta á það reyna. Æxlið sem var á stærð við hænuegg og stóð út úr hálsinum á henni hvarf á sex vikum og síðan hefur Jane verið laus við krabbamein.

Vísindamaðurinn Jane tók þegar að leita svara við spurningunni um hvað það gæti verið í mjólkurafurðum sem hefði þessi áhrif. Hún taldi sig m.a. finna sannanir fyrir því að í mjólkurvörum væri mikið magn vaxtarhormóna. Undanfarin ár hefur magnið aukist vegna nýrra búskaparhátta.

Hún finnur sig knúna til að fræða bæðai konur og karla um þessa uppgötvun því áhrifin eru þau sömu á krabbamein í blöðruhálskirtli og á brjóstakrabbamein.

Í megindráttum felast ráð Jane Plant um fæðuval fyrir krabbameinssjúklinga í því að forðast alfarið mjólkurvörur, skera eftir föngum niður neyslu kjötafurða, forðast allar unnar kjötvörur og önnur tilbúin matvæli vegna aukaefnanna, forðast hvítan sykur, koffín, gosdrykki o.fl. og halda sig sem mest við grófmeti; grænmeti, ávexti og kornmeti. Fyrir þá sem vilja minnka líkur á að fá sjúkdóminn er svolítið meira svigrúm en þá sem þegar hafar greinst með krabbamein. Hér á síðunni verður nánar fjallað um mataræði Jane Plant síðar. Í bili er vísað á heimasíðu hennar, svo og bækur hennar sem flestar fást í íslenskum heilsu- og bókabúðum og á netinu.

 

Meira um Jane Plant á Wiki-síðu Krabbameinsfélagsins Framfarar (krabbamein í blöðruhálskirtli), en það hefur m.a. gengist fyrir fyrirlestrum og málþingum um fæðu gegn krabbameini.

ÞB