Meira um mataræði og hráefni
Í vinnslu.....
Betra hráefni en lífrænt ræktað grænmeti er vart hægt að hugsa sér. Slíka ræktun hefur Hildur Hákonardóttir garðyrkjumaður stundað heima hjá sér í mörg ár. Hún er mjög fróð um íslenskar jurtir og plöntur sem gefa ávöxt og er snjöll að þiggja gjafir náttúrunnar. Hún gaf út bókina Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins sem hún var með í vinnslu í sex ár. Þar má finna mikinn fróðleik um fyrsta flokks hráefni.
Lífrænar vörur
Lífrænar vörur eru seldar víða um land í heilsubúðum, heilsuhornum blómabúða, ýmsum stórmörkuðum og dagvöruverslunum. Þær má einnig nálgast í heildsölu og áskrift hjá þeim sem framleiða þær og flytja inn. Vörur með merki Túns eru vottaðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og framleiðslan er undir reglubundnu eftirliti.
Upplýsingar um bændur og fyrirtæki sem framleiða vottaðar afurðir eða annast innflutning þeirra má fá hjá vottunarstofunni Túni.
Hvað er í matnum?
Hjá Matís er haldið utan um gagnagrunn um innihald matvæla, næringarefni, fitu, prótín, kolvetni, viðbættan sykur, bætiefni, vítamín og steinefni. Allt eru þetta upplýsingar sem gott er að hafa aðgang að.
Geymsla á grænmeti
Gulrætur
Best er að geyma gulrætur við 0-2 gráður og í miklum raka því þeim hættir til að tapa vatni. Best er að geyma gulrætur lausar í plastfóðruðum kössum, eigi að geyma þær lengi, en ekki í litlu plastpokunum sem þær eru seldar í.
Kínakál
er best að geyma við 0-2 gráður og vefja því inn í plast til að koma í veg fyrir að það þorni. Sé kínakál niðurskorið er nauðsynlegt að geyma það í plasti. Rétt meðhöndlað geymist kínakál frekar vel.
Paprika
Misjafnt er hve vel paprika geymist. Grænar paprikur geymast best. Best er að geyma papriku við 8-12 gráður. Í of miklum kulda linast hún.
Sveppir
Sveppir hafa lítið geymsluþol. Þeir geymast best í myrkri og raka við 2 gráður. Þeir skemmast fljótt í birtu.
Tómatar
Ekki á að geyma tómata í ísskáp því þeir eru viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá verða þeir linir og bragðlitlir. Best er að geyma þá við 10-12 gráður. Varast skal að láta tómata liggja nærri salati, gúrkum og öðrum slíkum afurðum.
Síðast uppfært í ágúst 2009
