Ertu nákomin/n einhverri eða einhverjum sem hefur greinst með krabbamein?
Ef þú sem þetta lest ert nákomin/n einhverri eða einhverjum sem hefur greinst með (brjósta)krabbamein og er á leið í meðferð eða hefur þegar hafið meðferð við meininu, jafnvel lokið henni, er líklegt að þú finnir hér svör við mörgum spurningum sem kunna að leita á hug þinn í tengslum við sjúkdóminn. Við ákveðnar aðstæður gæti þér þótt mikið álag að standa mjög nærri manneskju sem berst við sjúkdóm sem jafn illt orð fer af og krabbamein, hvort sem þú ert maki, foreldri eða barn. Kannski þarftu sjálf/ur á hjálp að halda og stuðningi þótt ef til vill sé ætlast til að hann komi frá þér. Meðferð við krabbameini hefur oftast áþreifanlegar og sýnilegar afleiðingar í för með sér auk annars sem ekki er jafn sýnilegt berum augum en engu að síður raunverulegt og getur haft mikil áhrif á daglegt líf og sambönd fólks. Í þeim sporum kann þér að finnast möguleikar þínir á að verða að liði harla litlir. Það mat er yfirleitt ekki rétt. Í langflestum ef ekki öllum tilvikum er hægt að veita stuðning og hjálp á ótal vegu, m.a. með því að kynna sér sjúkdóminn og meðferðina og hvernig áhrif þetta tvennt kann að hafa. Þá verður auðveldara að leita til þín eftir aðstoð og stuðningi – og ef með þarf – huggun og hvatningu.
Þú getur einnig veitt lið með því að bjóðast til að leita að svörum inni á vefnum fyrir þá sem ekki hefur aðgang að tölvu eða á óhægt um vik að leita sjálf, hvort heldur er vegna andlegs eða líkamlegs ástands. Til þess að fá leiðbeiningar er einfaldast að fara inn á Er þetta fyrsta heimsókn þín? Góða yfirsýn gefur Vegvísirinn yfir það sem er að finna inni á vefnum. Enn önnur leið er að fara inn á vefsvæðið Stuðningur og leita að ábendingum um uppbyggilegt lesefni eða kvikmyndir sem þú getur nálgast og fært þeirri eða þeim sem er í meðferð. Þar eru einnig uppskriftir að hollum mat sem þú getur útbúið. Inni á mataræði og næring eru afar gagnlegar ábendingar um heppilega fæðu með hliðsjón af aukaverkunum, hvort sem það er ógleði eða eitthvað annað. Leiðbeiningar um notkun húð- og snyrtivara er einnig eitthvað sem þú gætir viljað kynna þér áður en þú kaupir eitthvað slíkt til að færa (ást)vini þínum.
Í litlum rammagreinum á víð og dreif um vefinn segja ýmsar konur frá reynslu sinni af því að greinast með brjóstakrabbamein og ganga í gegnum krabbameinsmeðferð. Það sem upp úr stendur er mikilvægi þess að hafa einhvern til að tala við um andlega og líkamlega líðan. Með því að gefa af tíma þínum og leggja við hlustir færir þú trúlega einhverja þá stærstu gjöf sem hægt er að færa við þessar aðstæður.
Þakka þér fyrir og gangi þér vel.

