Er þetta fyrsta heimsókn þín?
Þessi vefur er eins og hús á mörgum hæðum. Þegar þú gengur fram á það af tilviljun eða leitar það uppi, sérðu að á því eru margar dyr og margir gluggar sem þér gæti þótt forvitnilegt að gægjast inn um. Eigirðu brýnt erindi skaltu ganga rakleitt inn og reyna að finna þann stað í húsinu sem þér hentar best að vera á einmitt núna. Vegvísir.
Hús þetta er um margt ólíkt öðrum sem er að finna í netheimum og sjálfsagt vildu sumir sem það heimsækja hafa gilda ástæðu til að leita ekki hingað. Hvað sem því líður vil ég sem húsráðandi bjóða þig velkomna/velkominn og vona að heimsóknin verði þér til gagns eða góðs á einhvern hátt.
Viltu fræðast um brjóstakrabbamein? Óttastu að fá sjúkdóminn og vilt vita hvaða líkur eru á að þú fáir hann og hvað geti hugsanlega stuðlað að honum? Viltu vita hvort þú getur gert eitthvað sjálf til að draga úr líkum? Mjög margt er unnt að gera til að draga úr líkum á brjóstakrabbameini og gott til þess að vita að þú ert á réttri leið. Inni á Minnkaðu líkurnar er trúlega svar við flestum ef ekki öllum spurningum þínum. Gangi þér að óskum.
Fékkstu nýlega að vita að þú ert með brjóstakrabbamein? Ertu enn í hálfgerðu losti og ekki farin að trúa þessu almennilega? Er búið að ákveða í hvers konar meðferð þú átt að fara og hvenær hún byrjar? Ertu núna að leita svara við spurningum sem brenna á þér og nánari upplýsingum um eitthvað sem læknirinn nefndi við þig en þú manst ekki alveg hvað var? Kannski hittirðu fleiri en einn lækni, t.d. bæði krabbameinslækni og skurðlækni. Ef til vill ertu ringluð og veist í raun og veru ekki almennilega við hverju er að búast eða að hverju þú leitar. Á þessum tímamótum þarftu á styrk og hvatningu að halda, skilningi og hughreystingu. Síðast en ekki síst þarftu á vitneskju að halda. Trúlega eru svör inni á þessum vef við flestum ef ekki öllum þeim spurningum sem á þér brenna.
Sértu óvön að ferðast um vefsvæði og veigrar þér við að leggja í þess konar ferðalag eins og sakir standa, skaltu biðja einhvern að létta þér leitina og finna síðurnar sem geta svarað spurningum þínum. Þú getur jafnvel beðið viðkomandi um að prenta út svörin fyrir þig svo að þú getir lesið þau af blaði. Fyrir þann sem vill og þarf að skoða margt – og það á svo sannarlega við manneskju sem hefur nýlega greinst með krabbamein – getur reynst einfaldast að hefja ferðalagið á Vegvísinum og athuga “áfangastaði” og “stoppistöðvar”. Mjög margt er endurtekið inni á vefnum með mismunandi áherslum og í mismunandi samhengi. Því er hægt að komast að svari eftir mismunandi leiðum. Athugaðu að þú getur STÆKKAÐ LETUR með því að smella á A+ efst í hægra horni hverrar síðu.
Stuðningur er séríslenskur hluti heimasíðunnar. Þar vona ég að þú getir fundið eitthvað sem getur styrkt þig og aukið þér baráttuþrek meðan þú ert að sigrast á sjúkdómnum og hjálpað þér að láta þér líða eins vel og kostur er, nú og framvegis. Segja má að ýmislegt sé þar smekksatriði. Ég hef safnað saman fróðleik úr mörgum áttum um náttúrulækningar og aðrar óhefðbundnar lækningaleiðir, upplýsingum um aðföng og hvar hægt er að nálgast eitt og annað, gert lista yfir bækur, kvikmyndir tónlist og annað efni á geisladiskum og spólum sem ég tel uppbyggilegt eða á einhvern hátt hressandi, nýtilegum netföngum, góðum og hollum mataruppskriftum o.fl. o.fl. Smám saman mun bætast við meira efni. Ábendingar og efni frá þeim sem heimsækja vefsvæðið eru vel þegnar. Þú getur t.d. sent tölvupóst með ábendingum, frásögn af eigin reynslu, öllu sem þér dettur í hug og langar að miðla til annarra (brandarar þar með taldir) á netfangið brjostakrabbamein@brjostakrabbamein.is og verður því tekið með kærum þökkum.
Að öðru leyti en því sem er þýðing á ameríska vefnum breastcancer.org er vefsvæðið í mótun. Hugmynd mín er sú að síðar meir fáist til samstarfs læknar og annað fagfólk sem er reiðubúið að sitja fyrir svörum og deila visku sinni og sérþekkingu. Þegar þar að kemur getur þú sent spurningar með tölvupósti og búist við að fá svar fljótlega (sértu ekki útskrifuð og farin að hugsa um eitthvað allt annað!). Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eingöngu skráður fjöldi heimsókna – ekki hverjir heimsækja vefsvæðið.
Að brjostakrabbamein.is hafa komið íslenskir læknar og fleiri sem hafa lesið efnið í íslenskri þýðingu. Upplýsingarnar á amerísku síðunni miðast við aðstæður í Bandaríkjunum. Það sem tíðkast hérlendis getur í sumum atriðum verið frábrugðið, þótt flestu sé á sama veg háttað og í samræmi við nýjustu þekkingu á sviði krabbameinslækninga. Reynt hefur verið eftir föngum að staðfæra efnið og gera grein fyrir hvernig málum er háttað hér á landi. Sumt virðist vera álitamál. Þá er það tekið fram. Sjáirðu eitthvað sérstakt í sambandi við meðferð, lyf og önnur læknisfræðileg atriði sem vekur áhuga þinn, skaltu umfram allt ræða við krabbameinslækni þinn og leita álits hjá honum.
Von mín er sú að þú getir haft jafnmikið gagn af því sem hér er að finna og ég hafði á sínum tíma af amerísku síðunni breastcancer.org, hvort sem þú þarft á hjálp annarra að halda til þess að nálgast efnið eða ekki.
Megi þér farnast vel, nú og ævinlega.

