Ertu í meðferð við brjóstakrabbameini?
Eðlilegt að óttast það sem getur reynst skaðvænt og jafnvel lífshættulegt. Þegar manneskja greinist með lífshættulegan sjúkdóm eins og krabbamein getur hugsalega orðið, er það ekki bara óttinn við að sjúkdóminn sjálfan sem þarf að glíma við. Brjóstakrabbameini fylgja fleiri áhyggjuefni og óþægilegar tilfiningar eins og kvíði, óvissa, tilfinning þess að hafa misst tök á tilverunni, að missa sjálfstraustið og kvenleikann, auk þess að óttast að dæturnar fái kannski líka brjóstakrabbamein.
Hefurðu nýlega fengið að vita að þú ert með brjóstakrabbamein? Finnst þér nauðsynlegt átta þig betur á greiningunni og meðferðarúrræðunum sem læknirinn talaði um við þig. Sé svo eru svör við flestum spurningum þínum þar að lútandi inni á Einkenni og greining.
Sértu á leið í Meðferð finnurðu í þeim hluta upplýsingar um allar þær lækningaleiðir sem koma hugsanlega til greina, hvort heldur er skurðaðgerð, krabbameinslyfjameðferð, markmeðferðferð með herseptíni, andhormónameðferð, geislameðferð eða annað.
Hvort sem meðferð hefur staðið lengur eða skemur er næsta víst að þú finnur fyrir aukaverkunum. Um aukaverkanir og leiðir til að draga úr þeim geturðu einnig lesið í hlutanum Meðferð. Er fjallað um hliðar- eða aukaverkanir hverrar meðferðarleiðar fyrir sig.
Ertu kannski komin langt með að ljúka fyrstu meðferð? Lauk ef til vill meðferðinni fyrir einhverju síðan en þú ert ennþá uppgefin á sál og líkama? Virðast allir – ekki síður þú en aðrir – gera ráð fyrir að tilveran verði alveg eins og hún var áður en þú greindist og svo er hún það alls ekki? Í kaflanum um Daglegt líf er m.a. fjallað um verki og þreytu sem oft fylgir krabbameinsmeðferð. Þar er einnig fróðleikur um margt sem getur hjálpað þér að bregðast við m.a. um næringu og fæðu, hár, húð og neglur, kynlíf og fleira sem mætir þér í meðferð og á bataveginum. Mikilvægan fróðleik fyrir þig og þína er þar einnig að finna um hvers vænta má við mismunandi aðstæður. Kynntu þér það svo að þú lærir að fara vel með þig og gerir ekki óhóflegar kröfur til sjálfrar þín eða leyfir öðrum að gera það.
Voru aðstæður þínar erfiðar fyrir? Finnst þér þú vera að bugast? Hvernig áttu að halda áfram þegar þetta bætist ofan á fyrri erfiðleika? Því miður eru ekki til neinar töfralausnir við erfiðleikum. Hins vegar þori ég að fullyrða að ýmislegt kann að vera erfiðara í lífinu en að fá brjóstakrabbamein, einkum hin síðari ár eftir að meðferðarleiðum fjölgaði. Að vísu er sjúkdómurinn talinn lífshættulegur á seinni stigum og reynist þá stundum banvænn, það þekkja allir, en oftar en ekki tekst að ráða niðurlögum hans um lengri eða skemmri tíma.
Inni á Stuðningur finnurðu örugglega eitthvað sem getur stappað í þig stálinu eða hresst þig um stundarsakir. Mörgum hefur reynst vel að segja við sjálfa sig að ástand sé aldrei vonlaust. Segðu sjálfri þér mörgum sinnum á dag að allt muni fara vel. Reyndu að binda ekki hugann um of við það sem er erfitt og það sem þú óttast. Þú skalt segja við sjálfa þig að allt muni ganga vel, aftur og aftur, jafnvel þótt þú trúir því ekki í byrjun, þangað til þú ferð að trúa því og sérð að þér er óhætt að trúa því. Oftast styttir upp um síðir. Þér kann að finnast það ótrúlegt einmitt núna, en síðar meir - þegar allt er af staðið – kann þér að finnast að sú lífsreynsla að greinast með krabbamein og takast á við það hafi einnig fært þér eitthvað dýrmætt. Þá sögu hafa ótrúlega margir að segja.
Ertu róleg og leitar skipulega inni á vefnum eða varstu kannski eirðarlaus – gast ekki hvílst og ákvaðst að fara á netið og vafra?
Hverjar sem aðstæður þínar eða ástæður kunna að vera, gleður það mig að þú hefur ratað hingað. Ég er næsta viss um að inni á þessum vef finnur þú eitthvað af því sem þú leitar.
Ef til vill áttu eftir að heimsækja síðuna oft, jafnvel í hvert sinn sem þér dettur eitthvað í hug sem tengist krabbameininu. Velkomin aftur! Kannski verður þú fastur gestur á spjallrásinni þegar og ef hún kemst í gagnið! Þangað til bendi ég þér á spjallrásina hjá breastcancer.org. Þar gætirðu náð sambandi við manneskju sem þú getur deilt með áhyggjum þínum og spurningum sem þig langar til að ræða við einhverja sem er í sömu sporum og þú, einhverja sem er ekki alltof nákomin þér. Sumt geturðu kannski ekki einu sinni hugsað þér að nefna upphátt, hvorki við lækni þinn né aðra – hluti sem snerta t.d. kynlífið. Þá er gott að geta sest niður og sent línu út á spjallrásinni eða flett upp á einhverju sem ef til vill svarar spurningunni sem þú ert að velta fyrir þér – eða gefur þér nýjar hugmyndir um hvernig þú getur bætt líðan þína, líkamlega og andlega.
Megi þér farnast vel.

